Bræðurnir breyta jólunum

0 out of 5

kr. 2.250

Bræðurnir breyta jólunum (2020) – Útgefandi: Bókabeitan

Höfundar: Bergrún Íris Sævarsdóttir og Haukur Gröndal

Kertasníkir arkar til byggða í sannkölluðu jólaskapi, spenntur að dansa í kringum jólatré með glöðum börnum og hitta bræður sína á gistiheimilinu Grýlukoti. Þar mæta honum hins vegar svekktustu sveinar sem hann hefur augum litið! Jólasveinarnir lýsa því daprir hvað aðventan hafi verið leiðinleg. Fólk sé allt of upptekið, enginn syngi og hinn sanni jólaandi sé á bak og burt! Sem betur fer fær Kertasníkir hugmynd að prakkarastriki sem bjargað getur jólunum og breytt þeim til hins betra!

Bergrún Íris hefur hlotið mikið lof fyrir bækur sínar, bæði sögur og myndir. Hér leiða þau Haukur Gröndal saman hreindýr sín en hann á að baki glæstan feril með ýmsum hljómsveitum.

Bræðurnir breyta jólunum er hjartnæmt jólaævintýri og sannkölluð veisla fyrir augu og eyru. Tónlistin fylgir sögunni sem niðurhal og streymi.

Kilja 64 síður

Lýsing

Höfundar: Myndir og texta, Bergrún Íris Sævarsdóttir og tónlist Haukur Gröndal

Þér gæti einnig líkað við…