Seiðmenn hins forna 1

0 out of 5

kr. 3.900

Seiðmenn hins forna 1 (2018) – Útgefandi: Angústúra

Höfundur: Cressida Cowell

Forðum var til galdur og galdurinn bjó í myrkum skógum. En þá kom herþjóðin… Xar er seiðmenni en býr ekki yfir galdramætti og er til í að gera allt til að öðlast hann. Ósk er stríðsmaður en á forboðinn galdragrip og er til í að gera allt til að leyna honum. Þegar örlagastjörnur Xars og Óskar mætast verða þau að gleyma þrætuefnum þjóða sinna ef þau eiga að komast í hinar leyndu dýflissur Járnvirkisins. En þar byltir sér nú eitthvað sem sofið hefur öldum saman… Fyrsta bókin í þriggja bóka flokki eftir metsöluhöfundinn Cressidu Cowell en bókaflokkur hennar Að temja drekann sinn sló rækilega í gegn og eftir þeim hafa verið gerðar bæði verðlaunakvikmyndir og sjónvarpsþættir.

Innbundin 400 síður

Lýsing

Höfundur: Cressida Cowell