Myndasögur og máttur þeirra

0 out of 5

kr. 4.700

Höfundur myndir og texta: Scott Mc Cloud

Myndasögur og máttur þeirra (2022) Útgefandi: ÍMS

Skyggnist inn í hinn dularfulla og misskilda heim myndasögunnar. Ítarleg umfjöllun um 3.000 ára sögu myndasagna. Galdrar í frásögutækni myndasagna afhjúpaðir. Leyndarmál milli myndarammanna rannsökuð. Máttur táknmynda leystur úr læðingi. Samhagsmunalegt jafnvægi orða og mynda útskýrt.

„Ef þú lest, semur, kennir eða teiknar mynda-sögur; eða ef þú vilt læra að gera það; eða ef þú vilt sjá sannan meistara í essinu sínu, þá verður þú að lesa þessa bók.“ —Neil Gaiman
„…ekki bara ómissandi fræðirit um myndasögur, heldur líka besti inngangur að sjónlistalæsi og frásagnatækni sem völ er á. Ómissandi fyrir áhugafólk um sögur af öllum gerðum.“ —Alison Bechdel
 „…brýtur niður tungumál myndasagna um leið og hún afhjúpar leyndardóma tíma, rúms, lista og alheimsins! Snjallasta myndasaga sem ég hef lesið í langan tíma. Bravó.“ —Art Spiegelman
Innbundin 148 síður