Hestar

0 out of 5

kr. 4.675

Hestar (2020) – Útgefandi: Angústúra

Höfundar: Rán Flygenring og Hjörleifur Hjartarson

Íslenski hesturinn hefur þolað margt í þúsund ára þjónustuhlutverki við kaldlynda þjóð í köldu landi. Hann hefur troðið vegalaust hraunið, strokið milli landshluta, hrakist á útigangi, drukknað í jökulfljótum og jafnvel gengið aftur. Hér stígur þarfasti þjónninn fram rétt eins og hann er og var allt frá því að fyrsta fylfulla merin steig óstyrkum fæti á íslenska strönd seint á níundu öld; laus við keppnisrembing, upphafningu og tildur.

Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring sýndu það með bók sinni Fuglar að íslensk fuglafræði er annað og meira en upptalning á þurrum staðreyndum. Nú er komið að hrossunum.

Innbundin 184 síður

Lýsing

Höfundar:  Hjörleifur Hjartarson rithöfundur og Rán Flygenring teiknari