Loðmundur – Namminamm fjölskyldan

0 out of 5

kr. 1.700

Loðmundur – Namminamm fjölskyldan (2019) – Útgefandi: Froskur

Sólin skín sínu skærasta. Niður frá himninum hanga viðartágar sem allt í einu lifna við og grípa um fót Loðmundar, hífa hann upp og fleygja honum í þéttvaxinn, rakan frumskóginn. En frumbyggjastelpa bjargar honum. Hún heitir Hneta. Hneta sýnir honum töfra skógarins.

Loðmundarbækur eru frábærar textalausar myndasögur fyrir krakka frá 3. ára aldri til að fóta sig í heimi fullorðinna. Myndirnar tala sínu máli og geta börnin spunnið upp söguna eftir sínu höfði.

Undir glaðlegum og saklausum myndasöguþræði, tekur hver bók fyrir mismunandi vanda eins og : Einelti, mengun, áreiti, einmanaleika, hræðslu, traust, vinátta o.s.f.v.

Loðmundarbækur eru þroskandi bækur!

Innbundin 36 síður

Lýsing

Höfundar: Pierre Bailly teiknari og Céline Fraipont rithöfundur