Loðmundur – Fanturinn Rastaber

0 out of 5

kr. 1.700

Loðmundur – Fanturinn Rastaber (2019) – Útgefandi: Froskur
Höfundar: Pierre Bailly og Céline Fraipont

Loðmundur gengur dreyminn um hveitiakur en kornið nær honum upp fyrir höfuð svo hann sér ekki risastóra vinnuvél sem er einmitt að slá kornið. Hún gleypir hann og vefur honum inn í heybagga! Honum finnst hann vera samloka!

Loðmundarbækur eru frábærar textalausar myndasögur fyrir krakka frá 3. ára aldri til að fóta sig í heimi fullorðinna. Myndirnar tala sínu máli og geta börnin spunnið upp söguna eftir sínu höfði.

Undir glaðlegum og saklausum myndasöguþræði, tekur hver bók fyrir mismunandi vanda eins og : Einelti, mengun, áreiti, einmanaleika, hræðslu, traust, vinátta o.s.f.v.

Loðmundarbækur eru þroskandi bækur!

Innbundin 36 síður

Lýsing

Höfundar: Pierre Bailly teiknari og Céline Fraipont rithöfundur