Huldufólk

0 out of 5

kr. 4.500

Huldufólk (2025) – Útgefandi: Froskur
Höfundar: Fannar Gilbertsson teiknari og Gunnar Birgisson rithöfundur

Ísland – 2061
Veður hefur snarvesnað í kjölfar loftslagsbreytinga, ríkisstjórnin stjórnar einungis litlum hluta landsins og glæpagengi ráða ríkjum hvarvetna. Eftir að þjófar stela óþekktum verðmætum frá stórfyrirtækjum neyða þeir ungan tæknimann að hjálpa þeim að flýja frá Reykjavík.
Reykjavík í sinni verstu mynd.

Gunnar Birgisson, höfundur sögunnar, er menntaður sem lögfræðingur í Bandaríkjunum og hefur starfað um árabil sem lögmaður í Washington, DC. Meðal annara verka hans er myndasaga sem gerist á Indlandi.

Fannar G. Gilbertsson, teiknari sögunnar, er íslenskur listamaður og höfundur. Hann er teiknari myndasögunnar Landverðirnir og er einnig höfundur og teiknari myndasögunnar Gen-01.

Innbundin 88 síður