Lýsing
Höfundur: Peyo
kr. 1.850
Strumparnir og stelpuþorpið (2017) – Útgefandi: Froskur
Í Strumpalandi er hár veggur sem Strumparnir forðast að fara yfir. Hvað haldið þið að sé hinum megin við vegginn? Strumpar auðvitað! Einhverja hluta vegna hafa þessir Strumpar vaxið og dafnað í sitthvoru lagi án þess að hittast. Þangað til í dag!
Strumplilja sem býr í stelpuþorpinu datt þegar hún var að fljúga á drekanum sínum einn morguninn. Ráðvillt reynir hún að komast heim en kjötætujurt fælir hana inn i göng sem er á veggnum. Hún kemst ekki hjá því að fara alla leið í gegnum göngin og þannig kemst hún í strumpalandið strákamegin! Hún er mjög hissa á að hitta þar stelpu eins og hún er nema ljóshærða. Það er hún Strympa. Upp frá því verður samgangur á milli strákastrumpa og stelpustrumpa og þau kynnast betur.
Fimm stuttar sögur eru sagðar í þessari bók sem varpa aðeins ljósi á þennan falda heim sem forboðni skógurinn er. Strumparnir og stelpuþorpið er fyrsta bókin í nýrri Strumpaseríu þar sem bæði kyn af strumpum lenda saman í ævintýri. Í lok bókarinnar eru teikni-og litaþrautir fyrir alla litlu strumpana.
Kilja 56 síður
Höfundur: Peyo